þriðjudagur, 3. júlí 2012

Nýtt hálsmen

Ég er nú svoldið mikið sjúk í litríka hluti. 
Ætli ég hafi það ekki frá henni ömmu Svönu glamúrgellu með meiru.

Reyndar er ég sjúk í að allt sé litríkt nema fötin,sem ég er þó að reyna að bæta og mér finnst ég standa mig bara vel.

En, þegar það kemur að skóm og skarti þá segi ég bara því litríkara því betra. Ég á t.d núna held ég enga almennilega svarta skó í góðu standi. Alltaf ætla ég að kaupa mér svarta en svo heilla litirnir mig bara meira.

En hvað um það, í kvöld fór ég og sótti mér mjög svo fallegt og litríkt hálsmen til hennar Írisar nágranna.


 

Mig hefur lengi langað í svona hálsmen en ég er meira fyrir að eyða minna í skartið heldur en meira, bara svo ég geti keypt mikiiið:-)


Anna
xxx