sunnudagur, 30. september 2012

Missoni

Ég fór í smá shopping spree í dag með Svönunni minni..
Duttum meðal annars inn í Lindex og ég var mjög svo spennt að gá hvort að eitthvað væri eftir af frægu Missoni línunni...jújú það var eitthvað eftir;)

Ég mátaði bara eina peysu samt, ég hefði alveg viljað bæta henni við í fataskápinn en er frekar að leita mér að þæginlegum og flottum bolum til þess að nota í vinnunni og ég held ég myndi ekki tíma að nota hana í þrifonum þar;)

 

Mjöög flott og frekar síð og kósý en ég er að reyna að velja og hafna núna;-) Var líka búin að eyða svo miklu...það eru samt leggings þarna í Lindex sem ég sé eftir og væru fullkomnar í vinnunna þannig að það er spurning um að gera sér bara ferð og sækja þær enda kostuðu þær ekki jafn mikið og peysan!;)

Annars með þessa línu þá finnst mér sumt ágætt en sumt ekki svo....Allt frekar eins þannig að mér fannst hún ekkert sjúkleg...að voru bara litirnir í peysunni sem að ég mátaði sem að gripu mig..

Barnafötin voru samt gordjöss! Mjög svo flottir litir og ekki eins og þeir venjulegu svo ég var meira hrifin af þeim;)

Núna er það einn SOA og svo smá stærðfræði;)

Anna
xxx