sunnudagur, 20. janúar 2013

Persónulegt..

Ég er mikið að reyna að breyta útlitinu á síðunni og svona en mér finnst það svolítið erfitt, ekkert svakalega tæknivædd sjáiði til! En ég ætla að halda áfram að reyna þannig að þið afsakið ef að lúkkið er svolítið skrítið næstu daga og ef þetta gengur bara alls ekki hjá mér að þá ætla ég að fá hana systur mína til þess að kíkja á þetta með mér enda hefur hún hannað nokkrar heimasíður frá því að hún var barn (no joke)

En ég er svona að velta því fyrir mér að hafa bloggið aðeins persónulegra en það hefur verið, kanski tala meira um mitt líf og svona ef einhver hefur áhuga á því.  Allaveganna að þá hef ég mikinn áhuga á persónulegu póstonum frá uppáhalds bloggurunum mínum og eins og ein af þeim sagði í gær í útvarpsviðtali (Elísabet Gunnars á trendnet) að þá eru allir frekar forvitnir.

Þannig að bloggið mun verða aðeins fjölbreyttara og ég vona að þið hafið nú bara gaman af því;-)

Anna
xxx

Engin ummæli:

Skrifa ummæli